237.faersla.Universidad Autónoma de Madrid
Júhú! Fór upp í skóla ádan í fyrsta skipti til ad skrá mig til leiks.
Skólinn er uppi í sveit. Madur tharf ad taka metro og svo lest. Samt tekur thad mig ekki nema svona 30 mín ad komast thangad, sem er bara vel sloppid. Ég tók alveg andkof thegar ég steig út úr lestinni, thetta var alveg eins og ad stíga inn í bíómynd. Thid vitid, svona skólathorp, grasflatir, gangstígar, fólk sem situr med bók undir tré, einhverjir ad gefa orkudrykki. Gedveikt kúl. Ég stód tharna opinmynnt og vissi ekkert hvert ég átti ad fara. En hringdi á hjálparmanninn (ölmu audvitad) sem kom og leiddi mig um svaedid. Hahah, fyndinn munurinn á skólum á spáni og íslandi. Ekki nóg med thad ad thad megi reykja í skólanum (reyndar ekki allstadar) og ad thad sé haegt ad kaupa bjór á kaffistofunni, heldur reykir fólk hass eins og ekkert sé. Ein kaffistofan er víst alltaf eitt stórt hassský, madur kemst bara í vímu vid thad ad labba thar í gegn. Á einum ganginum sat strákur og spiladi á gítar og adeins lengra frá voru einhverjir í boltaleik. Thetta er spennandi.
Annars fer tíminn bara í eitthvad hangs hjá mér, af thví ad skólinn er ekki byrjadur og eina manneskjan sem ég thekki hér er í prófum. Í gaer fór ég til daemis út ad leita ad hárnaeringu (nei, faest ekki í búdinni naest mér), labbadi bara eitthvad en skyndilega var ég stodd fyrir framan H&M! Thetta hljóta ad hafa verid orlogin sem leiddu mig thangad, beint til fyrirheitnalandsins.
Thótt ótrulegt megi virdast hef ég ekki enn bragdad áfengi sídan ég kom til Spánar. Var samt naestum thví búin ad kaupa mér hvítvín til ad drekka med pastanu sem ég eldadi í gaer, en nennti ekki ad bera thad upp stigana. Verd ekki áfengissjúklingur á medan ég bý á 5. haed. En thad er naestum thví ekki haegt ad sleppa tví ad kaupa vín, kostar bara svona 100-200 krónur flaskan. Thetta er bara grín. Kókdós kostar 17 krónur. En thad er ekki allt svona ódýrt, til daemis borga ég haerri leigu en heima, fyrir enga lúksus íbúd (thó hún sé alls ekki slaem).
Salafélagar: Ég er búin ad borda mikid af rauda lakkrísnum. Keypti mér audvitad líka chorizo og rjómaost, og fékk mér napolitanas í gaer. Namm:)
Besitos
La Blanca
Engin ummæli:
Skrifa ummæli