miðvikudagur, júní 08, 2005

319.faersla.Gays y guiris

Ég fékk 8,5 á spaenskunámskeidinu. Hahh! Er rosa ánaegd (thó thetta sé nú ekki sobreValiente eins og Helena sagdist hafa fengid haha (sobreSaliente thýdir ágaetis einkunn, en sobrevaliente myndi líkleg thýda ofurhugrakkur)), af thví ad mér gekk rosa illa og ég var veik og ósofin. Kennarinn hefur líklega haft thad í huga ad ég maetti alltaf í tíma og hugsad "ae, greyid, hún getur ekkert ad thví gert hvad hún er vitlaus".

Fór í sund med Helogleenu og svo baettust Clarisse og Sebastian og vinur hans í hópinn. Ég skal sko segja ykkur thad, ég hef aldrei séd eins marga homma samankomna. Their voru allir rosa brúnir og lágu í fadmlögum á sundlaugarbakkanum. Thad var ósköp saett. Their voru hvorki ad slefa upp í hvorn annan né med hendurnar ofan í naerbuxum hins, eins og gagnkynhneigdu pörin hér gera hvenaer sem er og hvar sem er. Sundlaugarnar voru ísjökul kaldar. Ég meina thad. Reyndi ad synda en nádi ekki andanum sakir kulda. Thannig ad vid lágum bara á bakkanum og steiktum okkur í u.th.b. 7 klukkutíma. Reyndi ad laera, og tóks alveg ad lesa thrjár bladsídur af glósum. Núna er ég fallega bleik.

Svo fórum vid á bar thar sem madur kaupir bara drykkina og faer svo endalaust af snittum med. Bjórinn kostar 100 kall. Ekki slaemt thad.

Háskólalódin er full af litlum börnum. Thau eru ad threyta inntökupróf í háskólann. Gangi theim vel. Keypti mér Jordi Labanda stílabók á 700 kall. Hugsa ad thessum pening hljóti ad vera vel varid af thví ad ég á pottthétt eftir ad laera eins og mófó af thví ad hún er svo flott. Og svo verd ég mesta gellan í masternum. Ég er sumsé búin ad fá inntöku í mastersnámid. Vale. Alltaf tharf madur ad laera. Aetla ad taka thetta nám í rassgatid. Ekki seinna vaenna ad byrja á thví ad vera alvörugefinn námsmadur.

Aetla ad laera núna rosa mikid í hljódfraedi til ad ég geti farid med góda samvisku í botellón í kvöld.

P.S
Erud thid sem erud ekki spaenskumaelandi ekki farin ad laera spaensku ordin sem ég nota, eins og t.d. botellón, jilipollas, de puta madre...? Titillinn thýdir hommar og útlendingar (frekar neikvaett slangur)

Engin ummæli: