342.færsla.nöldr
mig vantar kaffi en kaffistofan er lokuð og ég er með hausverk.það vantar svona kaffisjálfsala hér. kannski gerir kók sama gagn. ég sem er hætt að borða nammi og gos frá og með deginum í dag. kannski ætti ég þá bara að fá mér dietkók en langar mig í dietkók? í gær fór ég svo seint út úr odda að það var búið að læsa húsinu. ég fékk smá panikkatakk og flashback frá því að ég læstist inni í Retiro garðinum. en svo fattaði ég að ég gat opnað hurðina. er rosalega hrædd við að læsast inni. læstist einu sinni inni á klósetti þegar ég var 11 ára, nýbyrjuð í nýjum skóla, fór í fyrsta stærðfræðiprófið og mundi ekki grundvallaratriði deilingar. fékk stresskast og ákvað að fara á klósettið og athuga hvort ég róaðist ekki við það. þá vildi ekki betur til en það að ég hélt ég hefði læst mig inni, og í örvæntingu minni yfir því að vera að klúðra stærðfræðiprófinu og í þokkabót vera læst inni á klói, fór ég að hágráta. en svo var þetta allt saman misskilningur. var ekkert læst inni. og viti menn, himinn og haf hrundu ekki þó ég fengi lágt á einu skyndiprófi í stærðfræði í 6.bekk.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli