346.færsla. Regnhlíf ♥ Gael 4ever
Ása og Edda sáu Gael á alþjóðahúsinu á föstudaginn. Hann er alls staðar þar sem ég er ekki. Það er allt í lagi, þetta eru greinilega bara örlögin. Okkur var ekki skapað nema skilja. Græt bara ljúfsárum tárum yfir því, ég las nefninlega einu sinni að óhamingjusöm ást væri fullkomnasta ástin, af því að það er eina ástin sem endist að eilífu. Um ókomnar stundir mun ég horfa dreymnum augum út í blámannn, með ekka í sálinni, tregandi ástarfundinn sem aldrei varð, vitandi það að tvíburasálir munu eigast á endanum, líkt og Tristram og Ísold þegar greinar tjránna sem uxu á leiðum þeirra sameinuðust yfir kirjkuþakinu. Já, slík er ást okkar GGB. Þó hann viti það kannski ekki.
Æ, mig langaði bara að sjá hann af því að hann er frægur. Hahaahaha, mér finnst hann ekki það spes einu sinni:)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli