föstudagur, ágúst 19, 2005

367.færsla.helgin

Ég verð ein heima í kotinu um helgina. Það finnst mér einkar hugguleg tilhugsun. Ahhh. Ein. Ætla þó ekki að halda brjáluð partý... nei, bara njóta þess að vera EIN:) Fara í heitt bað með kertaljós og tónlist. Ganga um nakin (já nei, það sést svo mikið inn í íbúðina) og svona hluti sem maður gerir þegar maður er einn heima.

Ég ætla að einbeita mér að láta mér batna af varaþurrkinum um helgina. Og nei, ég ætla ekki að nota til þess góð ráð sem komu fram í kommentum síðustu færslu. Kossar eru af hinu illa... maður smitast bara af lífshættulegum varaþurrki (eins og ég er með núna), frunsum og hver veit hverju fleira. Allavega ætla ég ekki að hætta mér á kossamarkaðinn fyrr en ég er búin að hanna kossasmokkinn sem við Auður vorum að ræða um á msn um daginn, til varnar frunsusmitum. Varaþurrkurinn er svo viðbjóðslegur að hann nær langt út á kinnar. Ætla bráðum til læknis, ég sver það. Var skapi næst að fara heim úr vinnunni í gær af því að mér var svo illt í vörunum:) Hehe.

Annars á ég í útistöðum við lín plín skítarín. Það lítur allt út fyrir að ég sé enn fátækari en ég hélt. Sendi þeim fyrirspurn en hef ekki fengið svar og satt að segja er ég ekki mjög bjartsýn. Ég er eiginlega bara mjög svarstýn á allt þessa stundina. Þetta er allt að fara fjandans til...

Engin ummæli: