sunnudagur, september 04, 2005

380.færsla.staðan

Af ástandinu er það að frétta að í gær tók annar eyrnasnepillinn upp á því að bólgna upp eins og uppblásin rauð blaðra. Eyddi ómældum tíma og offjár á læknavaktinni í morgun og er komin á sýklalyf. Sver það, það er eins og það hafi verið sprautað sementi inn í snepilinn, hann er svo þrútinn.
Og svo er ég komin með kvef.
Hinir kvillarnir sitja við sinn keip og vilja helst ekki fara. Varaþurrkurinn er þó held ég á hægu undanhaldi, en hárið er enn á því að vilja ekki vera á hausnum á mér. Þó var augnsýkingin reyndar svo ægilega almennileg að hverfa bara sjálfkrafa, takk fyrir það.

Mikið er þjóðarbókhlaðan yndislega kyrrlát svona fyrir hádegi á sunnudegi. Bara örfáar hræður.

Engin ummæli: