föstudagur, september 16, 2005

388.færsla.

mér er fyrirmunað að vera nógu fræðileg fyrir fjárans BArnið. málið er einfalt, ég er bara of einföld. geteddekki. Ég vil fóstureyðingu!! Eða allavega borga einhverri konu fyrir að ganga með það fyrir mig! Býður einhver sig fram?

Annars er mér hætt að standa á sama hvað líkingin með BArninu og alvöru barni nær langt. Ég er meira að segja búin að þjást af morgunógleði allan sólarhringinn og geðsveiflum og grátköstum. Svei mér þá, mér er hreinlega farið að gruna að ég sé ekki einungis með BArni heldur líka barni. Jah, svo man ég eftir smávægilegum smáatriðum eins og reglulegum blæðingum og skírlífi sem benda til hins gagnstæða. Þannig að þetta er líklega bara BArnið. Ætla að senda það í heimavistarskóla (bókhlöðuna) ef því þóknast einhvern tíman að fæðast, og ég er hreint ekki viss um að ég ætli nokkuð að heimsækja það. Mig grunar nefninlega að ég muni ekkert verða svo stolt af BArninu, ég mun örugglega ekki vilja sýna öllum það og segja "sjáiði, þetta er BArnið mitt, finnst ykkur það ekki sniðugt?!".

Engin ummæli: