laugardagur, nóvember 26, 2005

416.færsla.Mímir

Ég verð að segja það. Íslenskunemar eru líklegast skemmtilegasta fólk í heimi. Kraptakvöldið í gær var algjör snilld. Actionary með bókatitlum og málfræðihugtökum er bara geðveikt skemmtó. Mitt lið rústaði keppninni, en eins og einhver benti á þá höfðum við líka samtals 10 háskólagráður í liðinu. Ég og Einar þurftum að leika samkvæmisleiki og forðist okkur og sýndum náttúrulega snilldartakta. Einar var samt snillingur kvöldsins, hann gat giskað á póststrúktúralisma. Ég kunni ekki einu sinni þetta orð. Svo voru ýmis skemmtiatriði og loks stigum við færeyskan hringdans og Bjarki söng einhverja tugi erinda af Ólafi riddarós á færeysku. Ótrúlegt hvað það getur verið flókið að taka tvö skref til hægri og eitt til vinstri þegar fólk er komið glas.

Svo langar mig til að benda fólki á að það er ekkert sniðugt að dansa ballet með bjór í hönd. Ég gerði það í gær og í einum snúningnum missti ég takið á bjórnum og hann flaug yfir hálfann salinn og skildi eftir sig bjór drifna slóð. Ekki málið.

Engin ummæli: