miðvikudagur, desember 07, 2005

421.færsla.böll

Hehe. Ég man þá tíð að manni þóttu Háskólaböll óhemju spennandi. Þá var maður í menntaskóla. Núna lítur maður varla á auglýsinguna. Enda fór ég á fleiri háskólaböll á meðan ég var í menntaskóla heldur en eftir að ég byrjaði í háskólanum:) Reyndar kom upp sú hugmynd að skella sér á háskóla jólaballið á Broadway með Sálinni núna. Held svei mér þá að það gæti verið gaman. Endurupplifa menntaskólastemninguna. Mér myndi amk fynnast það óskaplega fyndið. Eyddi nú ófáum stundum þarna forðum daga.

Engin ummæli: