laugardagur, desember 10, 2005

423. færsla.

Getur einhver sagt mér hvað í fjáranum ég er að gera í meistaranámi í íslenskri málfræði?

Í tilefni dagsins þá vil ég koma því á framfæri að mér finnst Laxnes leiðinlegur. Nema sem ljóðskáld. Þar elska ég hann. En þvílík raun að rembast í gegnum þessi meintu meistaraverk, íslandsklukkuna og sjálfstætt fólk! Jájá, kannski var hann snjall höfundur en er ekki meiningin með bókmenntum að maður hafi ánægju af því að lesa þær? Til hvers að lesa, ef ekki, segi ég nú bara? Hef samt ákveðið að mér beri sem útskrifuðum íslenskufræðingi að gefa þessu nóbelsskáldi okkar íslendinga einn séns enn og þá ætla ég að lesa Sölku Völku. Fólk verður gjarna hneykslað þegar ég læt uppi takmarkaðann (svo ekki sé meira sagt) áhuga minn á verkum skáldsins. Fólk hefur jafnvel gengið svo langt að gefa í skyn að maður sé hreinlega vitsmunalega heftur og skilji bara ekki bækurnar. Einhvern vegin vil ég gera því skóna að ég sé ekki það vitsmunalega takmörkuð að ég ráði ekki við Laxnes kallinn. Mér finnst hann bara leiðinlegur!
Er það ekki líka bara hallærislegt að allir verði að fíla þennan höfund bara af því að hann fékk þessi verðlaun?

En ég elska samt ljóðin hans.

Engin ummæli: