fimmtudagur, janúar 12, 2006

440.færsla.ha?

Ég lenti í svolitlu furðulegu í dag.
Hitti Heiðu í strætó og við förum að spjalla saman. Eins og gengur er strætó svolítið hávær, og við hækkum því örlítið róminn til að heyra í hvor annarri. Ég veit að meðlimir naktaklúbbsins eiga það til að vera "svolítið" háværir í samtölum sínum, þar með talin ég, en ég er nokkuð viss um að þetta hafi alveg verið undir eðlilegum mörkum í þetta skiptið. Nema hvað, allt í einu snýr maðurinn fyrir framan okkur sér við og biður okkur vinsamlegast að tala ekki HÁTT og bendir svo á eyrun á sér, þjáningarfullur á svipinn.

Vesalings maðurinn. Vorkenni honum mjög mikið að þurfa að heyra í tveimur stelpum tala eðlilega um daginn og veginn. Þvílík kvöl.

Engin ummæli: