miðvikudagur, janúar 18, 2006

442.færsla.Tapað-fundið

Háskólalögreglan lýsir eftir:

Lýst er eftir einkunn fyrir hausmisseri 2005. Ekkert hefur spurst til hennar síðan rétt fyrir jól. Nú er svo komið að aðstandendur eru farnir að hafa verulegar áhyggjur af heilsu einkunnarinnar og vona innilega að hún fari að skila sér í hús hið bráðasta. Þeir sem kunna að hafa séð einkunnina eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna það tafarlaust til nemendaskrár, sími: .....

Takk fyrir

Engin ummæli: