fimmtudagur, mars 09, 2006

465. færlsa. enn meiri leiðindi

Núna ætla ég bara að drekkja ykkur í leiðinlegum færslum. Þá getið þið sagt, ef einhver spyr ykkur af hverju þið séuð í svona vondu skapi, "það var drekkt mér í leiðinlegum bloggfærslum".

Þessi dagur er bara vondur. Eftir hrakfarirnar á þjóðó ætlaði ég að sökkva mér í neyslu óhollrar majonesríkrar fæðu og tölti því af stað áleiðis í Melabúðina. Þegar ég var komin næstum því alla leiðina fattaði ég það að ég hafði gleymt veskinu mínu heima, og þurfti því að hundskast heim aftur, hundfúl yfir þessari óþarfa líkamsrækt. Fatta ég þegar ég ætla að stinga lyklinum í skránna að ég hafði líka gleymt lyklinum heima. Þannig að ég er læst úti, enginn heima til að hleypa mér inn og þarf að svelta heilu hungri hérna í árnagarði, peninga og matarlaus. Raunar var konan á kaffistofunni svo elskuleg að skrifa hjá mér samloku, þannig að ég er kannski ekki alveg að drepast úr sulti hérna. En það er aukaatriði í þessu máli. Aðalatriðið er það að þetta er allt rosa ómögulegt og leiðinlegt! Skál fyrir því.

Engin ummæli: