558. færsla. að fara
Já, ég er að fara aftur. Eftir aðeins mánaðar viðdvöl á landinu ísa legg ég land undir fót á ný. Mér finnst nú eiginlega ekki eins og ég sé að fara til útlanda... meira eins og ég sé að fara út á land. Er alveg aaafskaplega róleg yfir þessu ferðalagi. Er ekkert búin að pakka eða neitt. Er reyndar búin að fatta af hverju ég er svona afslöppuð (mj. ólíkt mér, ég finn mér alltaf eitthvað til að stressast yfir) en það er vegna þess að í fyrsta skipti síðan ég var lítil er ég að fara til útlanda með mömmu og pabba...haha. Læt þau bara hugsa um mig, þarf ekkert að pæla í neinu sjálf! Segi bara "mamma, mig langar í soooona" og bendi á dót í búðargluggum. Jibbí.
Er að horfa rockstar á netinu. Mér finnst magni bara gera þetta mjög vel. Ég sem var búin að ákveða að mér fyndist hann ætti að fara heim núna. En mér fannst bara til dæmis Dilana standa sig verr. En það kæmi mér samt ekki á óvart þó Magni yrði látinn taka pokann sinn í kvöld. En síðast var ég alveg viss um að Storm væri að fara... sem gerðist ekki. Þannig að allt getur gerst.
I'm going to Espain! I like Espain. Mi amor. Mi vida. Mi corazón lationa. Bisbal, te quiero:)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli