mánudagur, október 02, 2006

566.færsla.

Allt að gerast þessa dagana. Það sem hefur gerst síðan ég skrifaði seinast.

a) Lok síðustu viku: lenti í verkefnastressi og skilaði afar vondum verkefnum.
b) Föstudagskvöld:Fór í hóf fyrir kennara íslenskuskorar. Þar var etið, drukkið og verið glaður. Fór því næst í partý hjá Evu. Svo í bæinn
c) Laugardagur: 40 ára afmæli sjónvarpsins og 40 afmæli Kidda bróður, ef hann væri á lífi. Við létum nú ekki fjarveru afmælisbarnsins hindra okkur í því að halda upp á daginn, og fórum í einkar huggulegt kaffiboð til föður hans.
d) Laugardagskvöld: Hið venjulega djamm, en samt óvenjulegt. Djammfélagar: Sigga P (réttnefni um þessar mundir;)), Erly hin sótölvaða og Aubba ítalska. Veit ekki hvað var í loftinu þetta kvöld.
e) Sunnudagur: Sofið og farið í mat til ma&pa.

Svo núna í dag á móðir vor afmæli. Hvorki meira né minna en 65 ára. Af því tilefni ætla ég að eyða deginum í það að fara yfir skrilljón verkefni sem ég á að skila aftur á morgun. Og skreppa svo til afmælisbarnsins í kvöld.

Já krakkar mínir. Það er allt að gerast. Er auk þess komin í badmíngton og bókaklúbb og ritstjórn ógeðslega töffs tímarits. Jæja, best að halda áfram að fara yfir orðhlutagreiningu á tyrknesku. Ble-ess.

Engin ummæli: