miðvikudagur, október 11, 2006

572.færsla.Vonbrigði

Þetta er búið að vera ansi misheppnaður dagur í dag. Og klukkan er bara eitt, þannig að það er margt sem getur farið úrskeiðis enn.

Byrjaði á því að ég mætti ein í badmington. Spilaði ein í 5 mínútur en gafst svo upp.

Svo fór ég á þjóðó til að klára verkefni sem ég á að skila í dag. Þá hafði einhver stolið greininni sem ég þurfti að nota.

Þá ákvað ég að trítla niður á borgarbókasafn og ná í bók sem ég þarf að lesa fyrir bókaklúbb... og þá... voru náttúrulega öll eintökin í útláni.

Sumir dagar eru bara ekki mínir dagar.

Engin ummæli: