574.færsla. vott
Það hlaut að koma að þessu.
Seinna syndaflóðið er hafið.
Ég er allavega ekki frá því að eitthvað af syndum helgarinnar hafi skolast af mér þegar regnið buldi á mér í langa göngutúrnum sem ég ákvað að fá mér í rigningunni. Buxurnar urðu gegnvotar og límdust þétt að löppununum á mér og í innkaupapokann sem ég keypti á leiðinni safnaðist lítil tjörn. Ég held það sé í alvörunni að koma flóð. Laufblaðahrúgurnar festust í niðurföllunum og stífluðu þau þannig að Tjarnargatan er nú beljandi stórfljót. Ég komst meira að segja í sjálfheldu. Varð að stíga í ökkladjúpt vatn til þess að komast leiðar minnar. Mér líst ekkert á þetta. Hefur einhver númerið hjá Nóa?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli