579.færsla. kalt
Mér er svo kalt. Kalt. Kalt. Ég er bara alveg að frjósa. Sit samt sko uppi í rúmi undir sæng og með tölvuna í kjöltunni sem ætti að hlýja mér. En nei. Ég er að frjósa!
Hvernig er hægt að ætlast til þess að maður geri nokkuð í þessum kulda? Heilinn í mér leggur niður þá litlu starfsemi sem var fyrir þegar það svona kalt. Hvað þá að hann geti á einhvern undarlegan hátt fundið út hvernig einhver orð hafi verið í indó-evrópsku, frumgermönsku og forníslensku. Hann getur það nú ekki einu sinni þegar hann er með fulla virkni.
Mbl. is segir að það sé tveggja stiga hiti. Ég kaupi það ekki. Það hlýtur að vera 20° frost. A.m.k.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli