þriðjudagur, október 31, 2006

581.færsla. jóla hvað?

Ég er veik. Mést það leiðó. Ég ætti að vera að læra en einhvern vegin hef ég ekki orku í neitt nema að liggja uppi í rúmi. Ég er eymingi. Með hor.

Núna vantar mig nauðsynlega nudd. Og norska brjóstdropa. Ekki það að ég haldi að þeir hjálpi endilega. Það er bara svo gott bragð af þeim he he he. He.

Á ég að segja ykkur eitt? Ég ÞVOLI EKKI (þetta 'v' er þarna viljandi) þetta jóla bull sem tröllríður fjölmiðlum og verslunum núna.
Nei: Jólin eru ekki að koma. Það eru fokking tveir mánuðir í það, aularnir ykkar.
Allt þetta "byrjaðu jólainnkaupin snemma" er bara til þess að reyna að fá fólk til þess að eyða meira.
Ég er jólabarn dauðans. Ég eeelska jólin. Allar smávægilegust hefðir í kringum jólin eru mér mjög mikilvægar. En mig langar ekki að vera búin að fá leið á jólunum mánuði áður en þau einu sinni byrja. Mér finnst bara að það ætti að banna jólaskreytingar í búðum.

Nú neyðist ég bara að gerast blind og heyrnalaus til þess að reyna að láta þetta árans jólajóla ekki ná til mín. Ekki það, ég er frekar góð í því. Næstum eins góð og ég er í því að vera ósýnileg.

Engin ummæli: