fimmtudagur, apríl 12, 2007

620.færsla. Þá er að sjá hvort færslan birtist

Ég las það í mogganum frá því í fyrradag (þriðjud. 10. apríl '07) að Tom og Katie láti barnið sitt alltaf vera nakið og að það megi ekki tala í kringum það! Ég vona að þetta sé lygi, en ef ekki þá finnst mér að Amnesty ætti að reyna að skerast í leikinn! Þetta hlýtur að vera mannréttindabrot... skítt og laggó að barnið sé nakið, það hlýtur að vera bara þægilegt (en hvað ef hún þarf að pissa eða kúka? er hún ekki í bleyju? er kannski þjónustustúlka sem hefur þann starfa einn að halda á barninu yfir salerni í hvert skipti sem það gerir sig líklegt til að losa þvag og hægðir? Maður spyr sig), en að það sé ekki talað í kringum barnið?!!! Það er nauðsynlegt að heyra tungumál til þess að læra það. Og börn virðast byrja mjög snemma að læra, og ef þau komast ekki í tæri við mannlegt tungumál fyrir ákveðinn aldur, geta þau aldrei lært tungumál til hlýtar. Jæja. Ég ætla ekki að ræða þetta nánar. Ég er bara stórhneyksluð. Þótt þetta sé sjálfsagt argasta lygi. En hvað veit maður, þau eru svo klikk.

Engin ummæli: