föstudagur, maí 04, 2007

628.færsla.

Var að lesa á vísindavefnum svar um sturtur og bað og þar var sagt að 10 mínútna sturta væri í lengsa lagi. Þetta er hin mesta vitleysa. Þarna var gert ráð fyrir því að venjuleg sturta tæki 5 mínútur. Ég skal segja ykkur það að það er varla hægt ef maður er með sítt hár að skella í sig sjampói, skola það úr, skella í sig hárnæringu og skola hana úr á fimm mínútum. Myndi kannski takast ef maður væri búinn með heita vatnið, eða gasið eins og kom fyrir okkur stelpurnar úti í Torre hér um árið. Þá tóku sturtur mjög stuttan tíma. Og maður vissi alltaf ef einhver (af þessum 7-9 sem bjuggu þarna í lítilli 3 herb. íbúð + köttur) var í sturtu af ópunum sem bárust út úr baðherberginu.
En alla jafna er ég í 20 mín í sturtu. Enda elska ég sturtu. Og bað líka. En ég er ekki með bað. Það er nú það.

dúdda, hvað ég er syfjuð. Var langt fram á nótt að gera verk. sem ég skilaði svo í morgun og lagði mig eftir hádegi til að bæta upp fyrir lítinn nætursvefn. Og núna er ég eins og ég hafi verið rotuð með hamri og svefnlyfi hafi verið bætt í drykkinn minn og ég sé tímabundiðlömuð.
Ok. ekki alveg svo slæmt en samt. þið vitið. Lömunin virðist samt ekki ná til fingranna. Þeir eru hressir eins og lömb að vori.

Fríið mitt var skemmt. Prófi var frestað.

3 ummæli:

Regnhlif sagði...

Af hverju þarf ég alltaf að gera innsláttar/stafsetningarvillur?! Þetta sökkar!
Alla vega ætlaði að skrifa "lengsta" en ekki "lengsa".

Alma sagði...

10 mínútna sturta er sturta án þess að þvo hárið hjá mér. Hvaða rannsóknum byggir Vísindavefurinn á? Tek algjörlega undir orð þín. Farðu nú vel með þig í prófunum.

Nafnlaus sagði...

Hell, Bjarni er lengur er 10 mínútur í sturtu og hann hefur ekkert hár!!!!! Þetta eyðileggur algjörlega trúverðugleika vísindavefsins