miðvikudagur, maí 09, 2007

631. færsla. Senn líður að kosningum, þá verða menn að gera upp hug sinn

Já, og til þess hafa sniðugir menn búið til einfalt próf sem fer eins og eldur um sinu um netheima Íslands núna korteri fyrir kosningar, eins og sagt er.

Ég er nokkuð ánægð með það að samkvæmt prófinu á ég að kjósa það sem ég var búin að ákveða að kjósa. Fjúff, alltaf gott að fá staðfestingu á því að maður sé í alvöru (nokkuð) sammála málefnunum en maður hafi ekki bara tekið einhverja þrjóskuákvörðun og standi svo við hana.
Ekki kemur heldur á óvart hvaða flokkur fær lægst stig hjá mér...
Það skrítna er að hinir fjórir flokkarnir, þ.e. Samfylking, Íslandshreyfingin, Frjálslyndir og Framsókn, fá nokkuð jafnt, eða frá 18 - 25 % hjá mér (í þessari útgáfu, ég breytti svörunum nokkrum sinnum til að sjá hvað breyttist, en Íslandshreyfingin fór alveg upp í 40 % einu sinni). Þar hefði ég nú haldið að Samfylkingin ætti að vera hæst og þar einhvers staðar í kring kannski Íslandshreyfingin. Og frjálslyndir og framsæknir skora svona hátt! Nú er ég hlessa.
En flokkurinn sem fær hæst hjá mér fær í kringum 60% (fór aldrei niður fyrir 56%) en sá sem fækk lægst fékk bara 6%.

Nú megið þið geta hvor er hvað:)

Titillinn er vísun í gamalt áramótaskaup.

Er nokkuð bannað að flíka pólitískum skoðunum sínum? Ætti ég að dílíta þessu í snarhasti?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við Agnar notuðum líka prófið frá Bifröst og fengum út nákvæmlega það sem til stóð. Óskup gott að maður skuli vera svona samkvæmur sjálfum sér. Maður má víst ábyggilega tala um pólitík eins og manni sýnist nema maður sé búinn að ráða sig sem fréttamann. Greyið Elsa. (Hanskjartanselluengils)

Alma sagði...

Ég fékk nefnilega þrjá flokka efsta, þar á meðal flokk sem ég myndi ALDREI kjósa. Kannski sýnir þetta litla pólitíska vitund mína.

Nafnlaus sagði...

Eg fekk lika rett, sem mig grunar ad se thad sama og thitt ... Sjalfstaedisflokkurinn augljoslega ;) Neidjok.

Nafnlaus sagði...

Ég kaus greinilega rangt, átti að kjósa Íslandshreyfinguna, sem betur fer þá samræmast skoðanir mínar ENGAN vegin skoðunum Sjálfstæðisflokksins