632.færsla. Geturðu ekki bara sagt að ég sé veikur í puttanum, eða eitthvað?
Hugsaði ég í morgun þegar hið geigvænlega munnlega próf í skyldleikatengslum germanskra mála blasti við.
En ég lét mig hafa það (að mæta í prófið) þó ég sé sko í alvörunni veik í puttanum! Ó já. Á sjálfan júróvisjón daginn gerði ég tilraun til þess að flá mig lifandi. Var bara í sakleysi mínu að vaska upp þegar glerkanna brotnar skyndilega í höndum mér og ég held á glerbrotum í lófanum. Skarst á nokkrum stöðum. Ógeðslegt. Flaksandi hold. Blóðlitað uppvask. Við brunum beint á slysó. Geng inn óstöðugum skrefum enda með lífið í lúkunum. Enda svo með því að þurfa að fara í stórkostlega aðgerð þar sem flaksandi hold var saumað aftur á lófa. Heil þrjú spor. Ótrúleg hetjudáð að hafa lifað þetta af.
Maður fer að halda að ég sé með einhvers konar akkilesar-putta. Í síðustu próftíð slasaðist ég einnig á litla fingri vinstri handar, eins og glöggir lesendur muna eflaust eftir. Í það skiptið þurfi ég einnig að eyða drjúgum tíma á sjúkrastofnun (læknavaktinni) í próftíma. Fékk vibba flís í þennan sama putta.
Jæja, Eiki komst ekki áfram. Hvort sem þetta var mafía eða ekki þá var þetta bara að mínu mati ekki nógu gott lag. Þeir stóðu sig samt með prýði. Só vott þó við séum ekki með í úrslitunum. Þá ætla ég bara að einbeita mér að því að styðja önnur lönd eins og Tyrkland! Úkraínu! Þýskaland, Frakkland ooog ég man ekki meir.
Húrra fyrir próflokum:)
Titillinn er vísun í gamalt áramótaskaup.
3 ummæli:
hæ til hamingju með próflok. ég heimta að hittast á morgun. búin að skrá í feiklimina byrjar 29 maí. og koma svo!!!!!
Athuga að nota bara plastkömnnur úr mjúku plasti á prófatíma. Forðast gler og timbur. Lakast að þú sérð ef til vill ekki fyrir þér að vera að fara mikið í próf á næstunni skilst mér. Ungverjaland var langbest í gærkvöldi. Berfætt í gallabuxum og bol.
Loksins einhver sem skrifar ekki biturt um júróvisjón! Eins og talað út úr mínum munni. Góðan puttabata!
Skrifa ummæli