633.færsla.
ég gæti skrifað mjög margt. um kosningarnar og eurovision. en ég er bara svo þreytt núna að ég get það ekki. mig langar eiginlega bara að grenja úr þreytu. ógeðslega gott stundum ef maður er ógeðslega þreyttur að grenja, losar svo mikla spennu. en ég hef bara ekkert til að grenja yfir þannig að ég efast um að mér takist að grenja núna. búin í prófum (öllum tveimur) og gekk að minnsta kosti ekki hræðilega (best að vera ekki með neinar yfirlýsingar, þar sem að minnsta kosti annar af kennurunum les bloggið að minnsta kosti stundum, þú veist hver þú ert, ef þú ert að lesa.)
það var eiginlega bara of mikið að gerast í gær. eurovision og kosningar. hvort tveggja fannst mér mjög skemmtilegt. sérstaklega fyrstu tölur kosninganna, sko alþingis. hef heyrt sögur af litlum börnum sem voru orðin svolítið rugluð í ríminu af öllum þessum kosningum og spurðu pabba sinn hvort hann hefði kosið Eirík Hauksson í kjörklefanum:)
Fór í fyrsta skipti á kosningavöku stjórnmálaflokks, þið megið giska á hvers. Það fannst mér bara mjög gaman. Eins og allt bara. Og ég vil koma því á framfæri að þessi umræða um austurblokkina í eurovision fer gekt mikið í taugarnar á mér. Já, það fer í taugarnar á mér að maður skuli næstum alltaf geta vitað hvernig þjóðirnar útdeila efstu stigunum. En hvað kjósa Íslendingar? Alltaf hin Norðurlöndin. Það er ekki bara fyrirsegjanlegt hvað austantjaldsþjóðirnar kjósa, heldur hvað allar þjóðirnar kjósa. Hverjum gáfu portúgalir 12 stig...hm... spánverjum! Og hverjir fengu 12 stig frá Möltu...hm... Bretland, aldrei þessu vant! Það er svo mikil hræsni að vera að bölsótast út í austur-evrópuþjóðirnar þegar "við" erum nákvæmlega eins. Og þið fyrirgefið en ég er búin að fá upp í kok af eurovision-abba-popplögum sem vesturevrópuþjóðirnar senda mjög gjarnan í keppnina, þannig að mér finnst bara fínt að austurevrópsku lögin komist áfram. Var "Vampires are alive" betra heldur en búlgarski viðbjóðurinn? Ég skal samt alveg skrifa undir það að kerfið virðist vera gallað... það er ekkert gaman að vita nokkurnvegin nákvæmlega hvernig löndin muni gefa stig, svo mín vegna má alveg breyta þessu.
Svo finnst mér líka fyndið að "austur-evrópa" er bara skilgreind eftir hentugleika. Fer þetta eftir landakorti? Er lettland örugglega austar en Finnland t.d.? Fer þetta kannski frekar eftir sögunni, er kannski átt við austantjaldslöndin? Er Tyrkland hluti af þeim? Hélt ekki. Og hvað með Ísrael... er það þá ekki líka austur-evrópsk þjóð. Hvað með Grikkland?
Þið afsakið en mér finnst þetta bara ansi ruglandi. En ég veit samt hvað þið eruð að meina...
Ég meika ekki sens og er farin að rugla hérna. En það er bara vegna þess að ég er svo þreytt. Og þetta kom út sem mjög neikvæð færsla, en hún átti einmitt að vera jákvæð. ég er nefninlega bara ánægð, þó svo ég vildi að Eiríkur hefði komist áfram (þannig séð), Úkraína hefði unnið og ríkisstjórnin hefði fallið. Eftir allt þá stóð Eiki sig vel, Úkraína varð í öðru sæti og stjórnin féll næstum því;) Það er bara ekkert svo slæmt.
Og ég veit að ég fer ansi frjálslega með stóra stafi og litla, og eitt og tvö orð hérna. en mér er dr*llu sama lige nu. Fordi jeg er svo þreytt.
3 ummæli:
Ég var að ljúka við færslu á mínu bloggi og kíki svo á þitt þar sem þú ræðir nákvæmlega það sama, bara með öðrum orðum. Er þér sem sé hjartanlega sammála. Mega hinar títtumtöluðu (getur maður skrifað þetta svona?) Vestur-Evrópuþjóðir (vissulega skilgreindar eftir hentugleika) ekki bara eiga sig þar eð áhugi þeirra á keppninni og að senda inn flott lag er minni en hjá öllum nýju löndunum í austri (aftur skilgreint eftir hentugleika)?
ég er líka svo þreytt. líkami minn segir stopp. var til 8 í gærmorgun. úff. allir vöðvar líkamans eru sársauka fylltir og stífir. ég get varla labbað. get ekki sofið eðlilega. úff hlíf vonandi kemst þetaí lag með feikliminni. hvernig væri að hittast bara og spila næst?
Einmitt, Alma.
Jú, Ása.
:)
Skrifa ummæli