634.færsla.fíla.
ég hef áhyggjur af því að húðflipinn hafi verið saumaður illa á. finnst eins og undarlegur hnúður sé að vaxa þarna. hef vaxandi áhyggjur af því að ég muni líta út eins og fílamaðurinn á litlaputta.
kannski get ég bara farið í skaðabótamál gegn lækninum og sagt að fingurlýtið hafi valdið mér ólæknandi sálarmeini.
hugsa sér. fyrsta skipti sem ég er saumuð á ævinni. fyrir utan einu sinni eða tvisvar eftir tannfjarlægingar eða tannísetningar. ætli ég sé með ör í munninum?
ég ætla að láta mér þetta að kenningu verða og vaska aldrei framar upp. stórhættuleg iðja.
2 ummæli:
Heyrðu mig góða! Við kaupum bara uppþvottarhanska og málið er leyst.
ég er ekki sannfærð....
Skrifa ummæli