miðvikudagur, maí 16, 2007

635.færsla. Lík í sófum

Ég get ekki á mér setið að koma með smá "moggablogg". Hér er sagt frá manni á Norður Spáni sem fann í nýju íbúðinni sinni vel varðveitt lík fyrri eiganda í sófanum.

Þetta minnir mig ískyggilega á það þegar ég fann vel varðveittan haus af fugli í sófanum okkar úti í Salamanca. Held ég sé ennþá trámatíseruð.

Mun óskemmtilegra heldur en þegar ég fann peysuna sem enginn átti eða pennaveskið sem fyrrverandi leigjendur höfðu týnt í sófanum, að ótöldum hinum og þessum snyrtivörum hennar Auðar. Ég tek sko snyrtivörufund fram yfir alvöru fuglshausfund anytime.

Það sem þessi sófi át ekki. Vesalings fuglinn. Skyldi restin af líkama hans enn hvíla í þessari holu gröf? Hvað gerðum við eiginlega við hausinn? Hentum við honum bara í ruslið?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hoho eigum við að skrifa á hjallaskólabloggið.. ég sá altieinu hvað ólöf er að gera það.. gaman að sjá það. erla ingvars er líka með barn;)-asa

Nafnlaus sagði...

"nei ég kyssti ekki ólöfu"! hahaha

Regnhlif sagði...

jú...

asa sagði...

nei!! HAHAHHA

Regnhlif sagði...

jú, ég sá það