639. færsla. endurfundir 2
haha. Aldrei hefði mig grunað að mér ætti eftir að finnast svona gaman á reunioni hjá grunnskólaárgangnum. Ég hélt ég væri ekkert sérstaklega spennt fyrir því að hitta þetta fólk aftur en svo þegar ég sá fyrstu andlitin færðist bros yfir andlitið á mér og ég held það hafi setið fast megnið af kvöldinu. Vá hvað mér fannst gaman að sjá alla. Ótrúlegt, suma hafði ég ekki séð í eitt einasta skipti frá því við útskrifuðumst. 10 ár. Mér fannst þetta algjörlega frábært. Í alvöru. Ógjó gaman. Ég er svo hissa hvað mér fannst gaman:) Haha. Haha. :) Tilkynnti Einari þegar ég kom heim að þetta hefði verið skemmtilegast kvöld lífs míns (og bætti við punktur is á eftir öllu sem ég sagði (og sagði að punkturis væri áhersluviðskeyti)) en ég held reyndar að þar hafi það verið bjórarnir sem voru að tala.
6 ummæli:
það kom bréf inn um lúguna hjá mér um daginn um svona reunion hjá mér :) Kannski ég fari, því ég held hreinlega að ég hafi ekki séð suma í .... ég veit ekki hvað mörg ár, þ.e. síðan við útskrifuðumst... eða þau, því þetta er miðað við gagnfræðaskólaprófið, en ég fór í landspróf..hmmm... 1976. þannig að þau hafa útskrifast sem gagnfræðingar 1977. Hvað eru eiginlega mörg ár síðan það var. jú, ég verð að fara, og svo þekki ég engan :) gaman!
þar sem enginn þekkir mann, þar er gott að vera, þvíaðallanandskotann, er þar hægt að gera... punktur.is
Já, samkvæmt minni reynslu eru þetta skemmtileg fyrirbæri:)
Gott ljóð.is
úff ég gerið mig af fíbbli. en það er í lagi þeta var gaman. good gracious. var samt ekki að fíla einn dj inn sem var þarna með okkur. (hressó) en samt. maður dansaði.
Bíddu bíddu, á ekkert að misnota sér aðstöðu sína og auglýsa nýjasta afkvæmið. Það hef ég gert.
Svar við kommenti: Vantar að ég held fararstjóra (sem er með krökkunum í sumarbúðunum á Íslandi) og starfsmann í sumarbúðirnar.
Skrifa ummæli