640.færsla. dagarnir voru drifnir af mér
Jæja. Þið haldið kannski að ég sé dauð, en ég er það ekki. Stundum hefur maður bara ekki bloggþörf. Kannski líka af því að ég er að vinna fyrir framan tölvu og læt það vera að fara í tölvuna eftir vinnu. Ég gæti náttúrulega líka bloggað í vinnunni (eins og ég er að gera núna) en mér er bara ekki farið að leiðast það mikið í vinnunni að ég finni hjá mér mikla þörf til að blogga. Núna til dæmis geri ég þetta af einskærri skyldurækni.
Það sem á daga mína hefur drifið síðan síðast. Hm. Ekki mikið. Ekki nema helst þá það að barnið leit dagsins ljós. Þ.e.a.s. blaðið undurfagra, Mímir. Meðgangan var nokkuð góð, tók um það bil 9 mánuði. Ekki var ég vör við mikla ógleði eða hárlos eins og á meðgöngu B.A-rnsins míns en hins vegar hafði þetta truflandi áhrif á námið, satt best að segja.
Annars hef ég lítið gert. Unnið, jú. Maður verður svolítið kreisí af þessu. Ég og vinnufélaginn erum búnar að búa til lista með hátt í 4000 sögnum og nú erum við í óða önn að búa til þolmynd af öllum þessum sögnum. Afrakstur dagsins í dag er sá að ég er búin með 1/3 af 'a' inu. Vinnufélaginn er kominn í 'æ' aftanfrá. Eitthvað hljómaði þessi síðasta setning undarlega.
Ég er að hugsa um að taka mig á blogglega séð. Hver nennir að lesa blogg sem aldrei er skrifað á? Ekki ég. Þess vegna ætla ég að vera ógjó dugleg og ógjó skemmtó á blogginu mínu. Bara eftir þessa færslu sem er ógjó leiðinleg.
Það er bara ekkert spennó að gerast í lífi mínu.... Kannski ég fari að reyna að koma mér í spennandi aðstæður til að fá einhvern spennandi efnivið á bloggið. Gæti farið að stunda hákarlaveiðar.
4 ummæli:
það er samt ógjó skemtó að lesa bloggið þitt þótt þú haldir að það sé ekkert spennó
Passaðu þig bara á því að borða ekki hákarlinn, ferskan....hann er nebbla eitraður þá !!!! Segðu svo að nám nýtist manni ekki. (þessi fróðleiksmoli var í boði þorramatur.is)
Varstu að blogga í vinnunni, tststs. Ekki að ég hefði ekki gert það líka í dag ;-) Gangi þér vel þá með "b"!
Michael, ég er ennþá í 'a'-inu.... kannski tekst mér að klára það í dag:)
Snóra, þetta hélt ég einmitt. Hélt þessu fram við hann Isaac spænska þegar hann sagði að mamma hans eldaði hákarl í heilu lagi, eða eitthvað álíka ótrúverðugt. En svo fór ég að efast um að þetta væri rétt hjá mér.
Fríða. Takk:)
Skrifa ummæli