311.faersla.fíestan
Fíestan á skólalódinni var sko skemmtileg (meira ad segja thó ég hefdi tapad símanum mínum, ég er nú vön ad fara heim í fýlu ef svoleidis gerist). Ákvednar deildir og félög skólans halda til skiptis fiestu á skólalódinni á fimmtudögum. Thá koma hljómsveitir og spila og seld er sangría, calimocho og bjór í 750ml glösum á sanngjörnu verdi. Ég hafdi aldrei farid ádur, fyrst fattadi ég ekki ad thad vaeri partý, skildi ekkert í thví ad allir vaeru ad drekka, og hélt ad fólk vaeri bara í sérstaklega miklu studi thessa daga. Svo kom babb í bátinn. Fyrir nokkrum vikum fóru nokkrir krakkar fullirúr fiestunni inn í einhvern tíma og einn strákurinn hellti sangríuglasinu yfir kennarann! Og fíestan var lögd nidur. Thess vegna vard ég rosa glöd thegar rassastjórninni tóks eftir miklar samningavidraedur ad fá ad halda rassafíestu. Thad hefdi nú verid aegilega leidinlegt ad missa af thessu!!
Thad var vibba heitt. Helena sagdi ad maelirinn hefdi sýnt 34 grádur thegar hún kom (eda var thad 37?). Hljómsveitirnar voru fínar, til daemis var ein svona fönk hljómsveit (held ég) thar sem einn gaurinn spiladi á thverflautu og var barasta KÚL! Jess, ég aetla ad taka upp flautuna mína og gerast kúl hljómsveitargella. Svo voru alls konar leikir, ratleikur, og ég fór í brennó. Haha, thad var dómari og alles (lítid vödvabúnt) í brennóinu, og einhverjar skrítnar reglur. Svo var líka svona plakata samkeppni. Okkar fagra íslandsplakat vard í thridja saeti (af themur...), húrra fyrir thví:) En thad skemmtilegasta var samt vatnsslagurinn. Sól+ molla+ rassar+áfengi....thad gat ekki endad ödruvísi. Fólk lét alltaf eins og thad vaeri fúlt thegar thad fékk kalda vatnsgusu framan í sig eda nidur eftir bakinu, en í raun og veru var thad bara glatt ad fá smá kaelingu. Vid Clarisse og Leena voru rosa duglegar ad gledja fólk. Sérstaklega fannst okkur gaman ad gledja hann Gernot sem var ad hössla, hahahaha. Reyndar var fólk fullt af hefndarthrá og var alltaf ad skvetta framan í okkur líka... skil ekki af hverju. Fólkid sem maetti í hvítum fötum gerdi mistök. Svo fóru strákarnir í fótbolta berir ad ofan, thad var ekki leidinlegt á ad horfa.
En hver í helvítinu stal símanum mínum, coño?
Jaeja, thad er kvedjuveisla í kvöld. En sorglegt. Nema thetta verdur náttúrulega engin kvedjuveisla, thar sem fólk fer ekkert heim strax. Haldidi samt ad thetta verdi thannig ad allir fari ad hössla alla, af thví ad nú fer hver ad verda sídastur? Thad vaeru fyndid.
Prófin mín byrja á thridjudaginn. Og ég er bara sallaróleg. Thó ég efist stórlega um ad ég eigi eftir ad ná thessu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli