laugardagur, júní 04, 2005

317.faersla.prófdjamm

Madur er bara: "partý, júbb, ég kem" og djammar fram á raudar naetur thó madur sé í prófum. Vona samt ad ég nái. Madur tharf bara ad nýta tímann, og thá aetti madur baedi ad geta djammad og laert.

Fórum í ítalskt rassapartei í gaer. Hitudum fyrst upp úti á svölum heima hjá mér. Thad var ansi huggó. Hlustudum á stjórnina og drukkum consumsangríu. Svo kom gamlikarlinn af nedrihaedinni og kvartadi undan thví ad vid vaerum ad bleyta stofuna hans (?) og ad vid löbbudum of hátt (munidi mrPeckles (?) í friends). Ég skildi ekki stakt ord sem hann sagdi en Cla kom mér til bjargar og rúmlega thad. Heilladi kallinn alveg upp úr skónum med persónutöfrum sínum thannig ad hann, sem hafdi komid gargandi, fór med bros á vör og kvaddi "góda skemmtun, unga fólk"·

Fórum svo í rassapartýid. Thekkjum ekki fólkid sem hélt partýid, var ekki bodid eda neitt, en fréttum af thví og skelltum okkur bara. Madre mía, thessi ítölsku rassapartý eru svadaleg. Thegar vid komum ad húsinu stód thar strákur fyrir utan og aeldi lungum og lifur í ruslatunnuna. Á ganginum í blokkinni sat slatti af drukknu fólki. Thegar hurdin inn í íbúdina var opnud skall á okkur hitabylgja. Heitt og blautt.Vid kja litum hvort á annad "eigum vid ad thora inn". Fórum inn og thar var PAKKAD. Endudum á thví ad eyda naer öllu kvöldinu úti á pínulitlum svölum út af eldhúsinu. Vá hvad thessir gaurar hljóta ad eiga tholinmóda nágranna.
Er ennthá engu naer hver hélt thetta partý. Sagdi bara hola vid alla og lét eins og ég thekkti einhvern.

Thá er bara ad hrista af sér thynnkuna, laera smá og gera sig til fyrir naesta partý! Lifi rassalífid! (segi ég thangad til ég fae einkunnirnar)

Engin ummæli: