föstudagur, júlí 01, 2005

333.færsla.pör

kannist þið ekki við þegar einhver er búinn að vera í löngu sambandi með einhverjum og maður fer að hugsa að þetta fólk fari nú að kaupa sér íbúð eða gifta sig eða eignast börn en áður en það gerist þá hættir fólkið saman? Vó löng setning. En svo kannski bara örstuttu seinna eignast annar aðilinn nýjan kærasta/kærustu og virðist bara hoppa yfir öll undirbúningsárin og er bara allt í einu búinn að kaupa sér íbúð eða giftast eða eignast börn með nýja makanum. Eins og það skipti ekki máli með hverjum maður gekk í gegnum undirbúningsárin, það sé alveg hægt að færa stigið sem sambandið var komið á yfir á næsta mann. Eða kannski tengist þetta þessu ekkert, kannski hefur þetta bara með aldur að gera. Kannski myndi ég bara strax stökkva í barneignir og íbúðakaup ef ég myndi allt í einu eignast kærasta, alveg bara án atrennu eða upphitunar, af því að ég er orðin svona gömul.

vitiði, færeyingar segja farðu niður og norður í staðinn fyrir norður og niður. haha.

ég veit ég þarf að breyta textanum efst. ég er víst ekki lengur villt í stórborginni. en ég tími því ekki.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ÉG MYNDI EKKI VERA PAR-HRIFIN AF ÞVÍ!!