fimmtudagur, júlí 07, 2005

337.færsla.nörd

be afraid, be very afraid.

nördaskapur minn, sem var mikill fyrir, mun líklega aukast um helming eftir þetta sumar. Ímyndið ykkur: 6 málfræðinörd sett saman í eina litla skólastofu átta tíma á dag í þrjá mánuði.

Það er massa stuð hjá okkur, en umræðuefnin verða sífellt sérhæfðari og einu brandararnir sem við segjum, og by the vay hlæjum rosalega að, tengjast málfræði. Hápunktur dagsins, ef ekki vikunnar, var þegar við sömdum tölvupóst til eins yfirmannsins og hlóðum á hann eins mörgum mál"villum" og við gátum, þágufallssýki, nýju þolmyndinni o.s.frv. Við iðuðum af kæti yfir eigin smellni.

Lifi nördin!

Engin ummæli: