mánudagur, júlí 11, 2005

338.færsla.netið á ný

ég er orðin nettengd á ný í heimhúsi. reyndar bara símalínu nettenging, en netið er netið.

ég skal sko segja ykkur það að aldrei aftur skal ég bíða í röð inn á kaffibarinn. ég get alveg farið þangað ef það er engin röð, en ég geri ekki sjálfri mér þetta aftur. það sauð á mér við það að bíða og bíða og horfa á eitthvað fokkings fólk sem bara smellti sér til hliðar við röðina komast strax inn. ég sver það, það eina sem kom í veg fyrir það að ég færi öskra úr mér lungun og berja fólk var tilhugsunin um að hugsanlega væri Gael García Bernal þarna inni. strákarnir sögðust nefninlega hafa séð hann þar kvöldið áður, og voru vissir um að hann yrði þarna aftur. þessi sama tilhugsun fékk mig líka til að vera þarna ALLT kvöldið, þangað til ljósin voru kveikt og allt. það var nú bara ágætt, hreint ekki eins leiðinlegt og seinast.

annars var held ég hápúnktur kvöldsins þegar við vorum að labba niður í bæ og strákarnir leiddu okkur í ófærur yfir vinnusvæði á hringbrautinni. sýndu okkur hvorki skilning né samúð vegna lélegs fótabúnaðar. við þurftum að klífa skriður, ösla ár og stökkva niður af hengiflugi, allt á sparískónum.

besitos
la rubia

Engin ummæli: