339.færsla.hús og kisur
af hverju fæ ég aldrei nein ímeil? kannski af því að ég sendi aldrei nein.
frá og með deginum í dag og næstu tíu daga verð ég barnapía. barnið er húsið hans bróður míns, kettirnir tveir og blóm barnanna hans. fríðindin eru afnot af þriggja hæða húsi. glæný risatölva, internet, stöð tvö,dvd spilari og svoleiðis. helsti kosturinn er mikil nálægð við miðbæinn, en húsið er einmitt þar, í miðbænum. fólki er velkomið að droppa inn í tíu dropa af kaffi, en bróðir minn á einmitt forláta kaffivél sem malar kaffið sjálf og fínerí, og nóg er af fletum ef fólk fer að syfja og langar ekki heim til sín.
úúú ú og playstation, ég var búin að gleyma því! jesssss (þá vitum við hvað ég mun gera næstu daga) og fullt af krakkadóti til að leika sér og barnabókum. JESS ég get gengið í barndóm, alveg frjáls, enginn að passa mig:)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli