345.færsla.fjandsamlegt umhverfi
Ég hef áttað mig á neikvæðari hliðum þess að eiga heima hér. downtown. Húsið er við hliðina á Hallgrímskirkju, sem mér hefur hingað til bara þótt sérdeilis skemmtilegt, þar sem að guðshúsið háa dregur að sér stöðugan straum útlendinga í útivistarjökkum, og ég hef alltaf verið hrifin af þessum skrítna þjóðstofni, útlendingum. En guð minn góður. Í höfði mér bylur stöðugur klukknahljómur. Og það er ekki af völdum timburmanna sem hamra á nagla í höfði mér... heldur kirkjuklukknanna í Hallgrímskirkju. Þakka guði fyrir að hafa farið snemma heim í gær og ekki djammað. Bíð ekki í það hvernig ég væri ef ég lægi þunn uppi í rúmi að reyna að sofa undir kirkjuklukknatónleikum. Hvellur klukknahljómur hefur dunið vægðarlaust á hlustum mínum frá því klukkan ellefu. Til dæmis búið að spila "ísland ögrum skorið" í bland við klassíska sálma.
Svo er skrifborðinu illa við mig. Hef rekið mig þrisvar sinnum í það á nákvæmlega sama stað. Þegar þriðja höggið skall á viðkvæmum blettinum voru tárin næstum því sprottin fram. Held ég hafi ekki verið eins nálægt því að grenja af sársauka í mörg ár. Nema kannski þegar ég hrasaði þegar við vorum læstar inni í Retiro. Þá hélt ég í alvörunni að ég væri tábrotin. Já, og þegar ég datt niður stigann á Celtic, þá actually grét ég af sársauka. Enda var það vooont.
1 ummæli:
Nice dispatch and this mail helped me alot in my college assignement. Thanks you as your information.
Skrifa ummæli