351.færsla.veisla
vaya, q llena!!
Við málfræðinördin höfum tekið upp á þeim sið að gera okkur glaðan dag í hádeginu á föstudögum, höfum hingað til farið á einhvern matsölustað,fínni heldur en kaffstofuna í Odda. Í þetta skiptið ákváðum við hins vegar að fara ekkert annað en út á tún, og ein stelpan kom með fullt af bakarísdóti. Namm, maðurinn hennar er nefninlega bakari sko, og ég er að springa núna.
Aldrei hefur verið eins skemmtilegt að vera nörd. Það er svaka stemmari í stofu 103 í Odda, við skríkjum af ánægju yfir skemmtilegum stafsetningarvillum á mbl. is. og eigum það til að detta ofan í djúpar samræður um íslenska málstefnu, eða eitthvað. Í vikunnni bauð ein okkur meira að segja í mat um kvöldið og í fimbulfamb. Það var sko skemmtilegt (ég vann, hehe;)).
Annars er ekkert af mér að frétta, ég er ennþá að lesa eldgömul færeysk danskvæði, um Sigurð fáfnisbana, sem heitir reyndar Sjúrður, og Guðrúnu Gjúkadóttur (Guðrun Júkadóttir) og pikka út allar sagnirnar! Jibbí, megastuð að sjálfsögðu. Svo vakna ég alltaf með stresshnút í maganum yfir ritgerðinni sem má ekki nefna. Þyrfti að virkja þetta stress í ritgerðarsmíðina. Ætla að fela netsnúruna og læsa sjónvarpinu. Það virkar ágætlega. Ætlaði nebbla að horfa á Sylvíu Nótt, en gat ekki skipt um stöð á sjónvarpinu hjá bróður mínum! Þannig að ég lærði í staðinn. Ég sver það, ég hlýt að vera 65 ára þegar kemur að tækjum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli