363.færsla.týndi miðvikudagurinn.
Þetta er svakalegt. Hér hefur verið framið rán.
Stóð fastar á því en fótunum að í dag væri miðvikudagur. Þangað til að vinnufélagarnir bentu mér á það að það væri fimmtudagur. Mér þykir þetta í hæsta máta undarlegt þar eð ég minnist þess ekki að hafa lifað meintan miðvikudag. Ég er því á því að honum hafi verið rænt hreinlega. Eða að mér hafi verið rænt, af geimverum t.d, og haldið sofandi í heilan dag. Eða þá bara að ég hafi gleymt að stilla vekjarklukkuna og að loksins hafi það gerst sem ég óttast svo mjög að ég sofi bara forever. Það skrítna er samt að vinnufélagarnir vilja meina að ég hafi mætt til vinnu meintan miðvikudag. Það kannast ég ekkert við. En þeir eru líka utan við sig eins og önnur málfræðinörd, og gætu bara hafa verið of upptekin að ræða banönum og bönunum til þess að taka eftir því að mig vantaði.
Mér þætti mjög vænt um ef einhver gæti bætt mér upp þennan miðvikudag. Gott væri til dæmis að fá tvöfaldan föstudag eða laugardag. Mér hafa alltaf þótt þessir dagar tilvaldir í að tvöfaldast.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli