sunnudagur, ágúst 14, 2005

364.færsla.samtal

Hvað ertu að gera?
Ég er að borða ís og læra
Hvað ertu að læra í ?
uuu... ég er í Háskólanum.
Já en hvað ertu að læra í Háskólanum?
Ég er að læra íslensku í háskólanum
Nei.

Nei, þú ert ekki að læra íslensku. Þú KANNT íslensku.
Já, en ég er ekki að læra að tala íslensku, ég er að læra um tungumálið.
Jaaaá. Ég kann ekki neitt um það.
Ég er til dæmis að læra af hverju maður segir hlutina svona en ekki hinsegin
Já. Til dæmis: hvað þýðir uuu... uuu... dlösin (glösin)... uuu... dlösin, dlösin eikka, ég veit ekki.....

svo gafst fimm ára frænka mín upp, hló og skildi mig eina eftir með vangavelturnar um hvað í ósköpunum ég sé eiginlega að læra.

Engin ummæli: