miðvikudagur, ágúst 17, 2005

365.færsla.

Ég fer nú bráðum að verða reið. Mér finnst með öllu ófært að vera ekki búin að fá fjárans námið úti á Spáni metið. Arg. Svona er ég nú óþolinmóð.

Svo er ég víst búin að taka að mér að aðstoða lítinn þýskann rass sem er að koma hingað á morgun. Myndi vilja bakka út úr þessu núna, en þegar ég bauð mig fram sá ég ekki alveg fyrir hvað ég yrði upptekin, og það er víst full seint að hætta við núna. Jájá. Þetta getur nú sko bara verið skemmtilegt, hef alltaf verið hrifin af útlendingum. Svo hef ég náttla samúð með villtum rössum, þar sem ég hef sjálf verið villtur rass, og hafði þó Ölmu. Varð þó fyrir vonbrigðum, hafði séð fyrir mér að ég fengi úthlutað hot spænskumælandi latino gaur, (til að æfa spænskuna, sko, haha) en fæ þá þjóðverja, sem er í þokkabót stelpa! :) Þannig að ef þið sjáið mig með þýskan rass í eftirdragi, þá vitiði hvað er í gangi.

Ég er ennþá að lesa um Sjúrð Fávnisbana. Hann er núna í heimsókn hjá dvergum.

Engin ummæli: