369. færsla.dámar mér ekki. eða jú.
Hvað sagði ég ekki í síðustu færslu.
Ég er alveg hætt að skilja lín. Fyrst segja þeir mér að ég eigi ekki rétt á nema 65% lánum fyrir seinustu önn, af því að ég átti bara 8,5 einingar eftir af náminu (jája, manni er refsað fyrir það að taka of mikið af einingum). Ég sendi einhvern röflpóst og vísa í greinar hér og þar í reglugerðinni. Og svo allt í einu eru FULL námslán komin inn, og 70.000 kalli meira en ég átti að fá. ?! Þannig að á undarlegan hátt er ég ekki nema 50.000 kall í mínus, ég sem hélt að ég væri svona 400.000 kall í mínus. Skil ekki neitt í neinu. Svo virðist vera að röflpósturinn hafi virkað, og að ég hafi fengið of lítið fyrir áramót sem þeir séu að borga mér núna.
Treysti samt engu núna. Allt of miklar sveiflur fram og til baka í fjármálum mínum þessa dagana. Gæti alveg eins verið að þetta hyrfi á einhvern undarlegan hátt út af reikningnum mínum. En er á meðan er. Jibbí! Ég er ekki fátæk!
Ekki nema 50 kalll í mínus. Það er ekki neitt!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli