370.færsla.
Líf mitt vantar alla spennu um þessar mundir. Helsta spennan í lífi mínu snýst um það hvað gerist í næsta lost þætti og hver sé dularfulli ítalinn á msn. Gad.
Reyndar er allt sem tengist skóla frekar spennandi um þessar mundir. En ekki spennandi á góðan hátt. Meira svona blæðandimagasársstressspennandi.
He. he. Nú er Gebbið á hæðinni fyrir ofan mig að taka sumarpróf.
Nú væri ég í prófi ef ég hefði þurft að taka málfræði 3. Gott. Þó mér leiðist í augnablikinu.
Ég ætla að lenda í spennandi ævintýrum þegar ég er búin með ritgerðina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli