laugardagur, ágúst 27, 2005

375.færsla.í ruglinu

Ég er haldin örvæntingarfullri örvæntingu sakir öfgafulls ofáts og illa ígrundaðra ímyndana um ótímabær fullorðinsár.
Ég er haldin lífsótta og veruleikaflótta! Ó guð, hvernig er hægt að lesa yfir sig þegar maður er ekki einu sinni að lesa og borða yfir sig án þess að verða saddur? Málfræðingar tala um eignarfallsflótta og þágufallssýki en það eina sem kemst að hjá mér er veruleikaflótti og nautnasýki. Svo er ég ímyndunarveik á ofurraunsæjan máta. Fremst af öllu er ég þó misskilinn snillingur . Og ofmetin fábjáni.

Engin ummæli: