mánudagur, ágúst 29, 2005

376.færsla. Móðir vor.

Það er stórhættulegt að leita að máldæmum á netinu. Maður dettur oní það að lesa blogg ókunnugs fólks, barnalandssíður og það sem er yfirleitt mest spennó, umræður á doctor.is og femin.is. En haha, það vitlausasta sem ég lenti (alveg óvart) í var að taka prófið "hvernig móðir ert þú" á femin.is. Svona með tilliti til þess að ég er ekki móðir, ekki einu sinni guðmóðir, í mesta lagi móðursjúk. Kemur í ljós að ég er meðalmóðir, en þó er sagt í útskýringunni að ég sé frábær móðir. Auðvitað. Kemur engum á óvart. Ég er auðvitað besta mamma í heimi, fyrir utan það að ég er barnlaus.

Engin ummæli: