miðvikudagur, ágúst 31, 2005

3ðsíe.færsla.ástandið

Svona er staðan á bænum (ath. ekki fyrir viðkvæma):

1.stk. varaþurrkur dauðans sem nær niður á höku og upp undir nef.
1.stk. augnsýking.
1.stk. ósýnileg járnflís í ilinni
1.stk. verkur í ökkla vegna undarlegs göngulags vegna ósýnilegrar flísar í il
1.stk. hárlos, þið vitið svona þegar maður rennir hendinni í gegnum hárið þá er lúkan full af hárum-gerðin.

1.stk. gríðarlega þurr húð í andliti


1.stk. vælandi ég yfir þessu ástandi.

það bara á ekki af manni að ganga. persónulega fríkar hárlosið mig út (góð íslenska, hú kers) og þegar augnsýkingin bættist ofan á hitt þá var mér eiginlega allri lokið. já ég veit, þetta er bara varaþurrkur, hárlos, augnlos og flís. ekkert stórmál. en í alvörunni. ef þið sæjuð á mér varirnar þá gætuði kannski skilið hvað mér er illt.

Engin ummæli: