þriðjudagur, ágúst 30, 2005

377.færsla.þurrkatíð

Í fréttum er það helst að varaþurrkurinn hefur gert aðra atlögu. Snúið aftur og í þetta skiptið enn öflugri. Ég hinsvegar ákvað að svona gæti þetta ekki gengið lengur, ég yrði að snúa vörn í sókn. Fór í apótekið og fékk undrakrem sem á að duga gegn, hvorki meira né minna: munnangri, sárum í munnvikum, frunsum, munn-og varaþurrk, þurrum höndum, sprungnum hælum, fótraka, vörtum, skordýrabiti, bólum, nefstíflu, sveppasýkingu og ertingu eftir rakstur. Ku vera kælandi, hreinsandi og mýkjandi. Mér sýnist á öllu að ég muni aldrei þurfa að kaupa mér annað krem, þetta er bókstaflega við öllu, nema kannski ástarsorg.

Var að fá fréttabréf frá skemtistaðnum Palacio. Æ, ó æ. Gaman væri nú að geta skroppið á Palacio á fimmtudaginn, borgað sig inn á þennan dýra stað, fullan dónalegum, slepjulegum,árásargjörnum karlmönnum. Með gógódansara af öllum kynjum, konum, körlum og kynskiptingum. Vatnsflöskur sem kosta 600 kall. Límmiðarnir með þjóðernunum. Æ. Ohh.

Engin ummæli: