þriðjudagur, september 06, 2005

383.færlsa. you can drikn ANYTHING you want from the table.

Eins og einn snillingur sagði þá er: Evrything's happening!
Þess vegna verður þetta blogg í skeytastíl, má ekki vera að þessu rugli.

Er búin að komast að því hver dularfulli msnarinn er. Það er bara hann ivan litli ítalskarassakrútt.

Er komin með hólf í Árnagarði. How cool is that?! Töff. Formlega orðinn aðstoðarkennari (gúlp)

Byrjuð í masternum. Allt að gerast þar. Vorum átta í hljóðkerfisfræðinni í gær en hins vegar varð allt vitlaust í orðabókarfræðinni í dag [úúú hot latinogaur á þjóðó... elta hann] þegar 14 mættu!
Sýnist ég vera yngst en þó er amk ein stelpa sem er einu eða tveimur árum eldri en ég.

Nú er bara að rembast og framkalla hríðir... hvort sem BArnið er tilbúið eða ekki. Það skal fæðast!

Er slöpp en allt er að skána, varir, hárlos og sýking. Lofa að hætta að tala svona mikið um líkamsvessa á þessu bloggi... ef ég held svona áfram þá endar þetta eins og Tómas Jónsson metsölubók, que dios me ayude ef það gerist.

Over and out.

[ok, kannski ekki svoooo hot (meira svona slepjó) en latino engu að síður!]

Regnhlif has left the building.

Engin ummæli: