384.færsla.að fara yfir um?
Í gærkvöldi sagðist ég vera að fara að útskrifast í október úr íslensku með spænsku sem aukaFALL.
Nei Hlíf.... aukaFAG. Lífið er ekki setningarfræði. Það væri samt gaman að tala bara með málfræðiorðaforða og heimfæra hann upp á daglegt líf:
"Já, ég er með BA próf í íslensku sem nefnifall og spænsku sem aukafall."
"þessi verkur í maganum er beint andlag kjúklingsins sem ég borðaði í gær"
"Siggi er ekkert smá quirky í dag"
"Jón Jónsson var kjörinn frumlag flokksins í gærkvöldi"
Sum sé- gott væri að losna við BArnið fljótlega, áður en meðgöngueitrunin versnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli