miðvikudagur, september 14, 2005

38?.færsla.stígur ekki í vitið þessi stúlka.

dohhh, ég er svo treg.
Fékk email í gær, merkt 1. heimaverkefni. Ég hugsa "nú, er ég strax búin að fá það til baka?" og hélt að þetta væri svar á heimaverkefni sem ég sendi í tölvupósti í fyrradag. Svo kíki ég aftur núna, og þá eru búin að bætast þrjú við merkt heimaverkefni 1/ 1.heimaverkefni o.s.frv. og ég hætti alveg að skilja. Fattaði loksins að þetta er heimaverkefnin sem ÉG á að fara yfir... úbbs. Bjóst bara ekki við að fólk væri að skila fyrir skilafrestinn. Þetta eru greinilega nýnemar.

Engin ummæli: