385.færsla.hönnun
Ég er búin að ákveða að fara að hanna og sauma föt. Kannski ekki í fyrsta skipti sem ég ákveð þetta. Núna, þegar mamma er búin að kaupa eina af saumavélunum sem við Aubba, Þóra og Ása lærdum að sauma á, fyrir slikk, hlýtur þetta að ganga betur. Stór framför frá eldgömlu grænu járnsaumavélinni sem mamma keypti notaða fyrir um 40 árum og notaði svo til að sauma föt á okkur systkinin sex. Sumsé, vélin sú arna er búin að gera sitt gagn og vel það og orðin forngripur. En sú nýja (sem er reyndar líka gömul) hlýtur að vera tilkippileg í nokkur sérlega vel hönnuð og kúl pils á mig. Hehe.
Post scriptum eða það.
Pínu fúl út í Lost. Engin svör. Nú á maður að engjast af spennu þangað til í næstu seríu. Mig dreymdi bara lost og eyðieyjadrauma í nótt. Vona að þetta verði ekki draumfarir mínar alveg þangað til í næstu seríu. Vaknaði ekkert úthvíld sko.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli