391.færsla.te estoy esperando
Ég vil hvetja fólk til að taka lærusessjón á þjóðó. Hvernig væri nú að taka námið einu sinni skynsamlegum tökum og byrja strax að læra? Allt of oft hefur fólk, ég nefni engin nöfn (ég), fyrst áttað sig á því að skólinn sé byrjaður í kennsluhléinu, og rétt vaknað til lífsins lærulega séð tveimur dögum fyrir próf. Ég sting upp á því að fólk massi einn og einn lærudag núna strax í byrjun annar og geti þannig djammað eins og mófó um helgar með góðri samvisku. Væri ekki þægilegt að vakna á sunnudagsmorgni með helmingi minni þynnkubömmer en áður? Þurfa bara að hafa áhyggjur af því að maður hafi: reynt við vin sinn/týnt símanum sínum/dansað uppi á borði/hringt í mömmur vinkvenna sinna/heimtað að kyssa alla af hinu kyninu inni á staðnum á höndina/dottið/ælt/grenjað eða hvað það nú er sem við erum vön að gera okkur til skemmtunar á laugardagskvöldum, en þurfa ekki í ofanálag að rembast við að skrifa ritgerð eða gera verkefni eða lesa óskiljanlega grein á öðru tungumáli þegar svona er ástands.
Þess vegna segi ég: ALLIR Á HLÖÐUNA. Hvergi getur að líta fegurra og fjölbreyttara samansafn af fólki á okkar aldri. Hvergi er betra andrúmsloft til að efla andann með fræðilegu grúski. Og svo er ég nottla hérna á hverjum degi (aðal aðdráttaraflið auðvitað)
Koma svo.
Jess. Gebbó var að mæta á svæðið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli